West Ham hefur staðfest að Argentínumaðurinn Pablo Zabaleta er genginn í raðir félagsins frá Manchester City. Samningurinn hans við City var runninn út og fer hann því til West Ham án greiðslu.
Zabaleta skrifar undir tveggja ára samning og er hann fyrsti leikmaðurinn sem West Ham fær til sín fyrir næstu leiktíð.
Leikmaðurinn á 58 landsleiki fyrir Argentínu og mun hann berjast við Sam Byram um hægri bakvarðarstöðuna hjá West Ham. Zabaleta kom til City frá Espanyol árið 2008 og lék hann yfir 300 leiki fyrir félagið og vann tvo Englandsmeistaratitla á þeim tíma.
#WelcomeZabaleta pic.twitter.com/8W9zqzrBoF
— West Ham United (@WestHamUtd) May 26, 2017