Griezmann kveður hálfkveðnar vísur

Antoine Griezmann í leik með Atlético Madrid á síðustu leiktíð.
Antoine Griezmann í leik með Atlético Madrid á síðustu leiktíð. AFP

Antoine Griezmann, framherji Atlético Madrid, tjáði sig um þá orðróma sem verða sífellt háværari þess efnis að hann sé á leið frá félaginu til Manchester United í sumar.

Griezmann sagði í Twitter-færslu í gærkvöldi að hann hafi ekki farið fram á sölu frá Atético Madrid, en hann muni ákveða framtíð sína eftir að hafa ráðfært sig við ráðgjafa sína á næstu dögum.

„Fréttir sem segja að ég hafi ákveðið að yfirgefa Atlético Madrid eru ekki á rökum reistar. Ég er enn leikmaður Atlético Madrid. Ákörðun um framtíðina verður tekin eftir fund með ráðgjöfum mínum,“ sagði Griezmann í færslu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert