Silva kominn með nýja vinnu

Marco Silva, nýráðinn knattspyrnustjóri Watford.
Marco Silva, nýráðinn knattspyrnustjóri Watford. AFP

Portúgalski knattspyrnustjórinn Marco Silva sem hætti störfum hjá Hull City í kjölfar þess að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð var ekki lengi án atvinnu. Staðfest var í dag að hann myndi taka við af Walter Mazzarri sem knattspyrnustjóri Watford. Þetta kemur fram í frétt SkySports.

Silva var ráðinn sem knattspyrnustjóri Hull City í janúar á þessu ári eftir að Mike Phelan hafði verið látinn taka pokann sinn. Hull City hafnaði í neðsta sæti deildarinnar og leikur því í næstefstu deild á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert