Lewandowski orðaður við Chelsea

Robert Lewandowski er magnaður markaskorari.
Robert Lewandowski er magnaður markaskorari. AFP

Englandsmeistarar Chelsea hafa gert tilraun til að festa kaup á pólska markahróknum Robert Lewandowski frá Þýskalandsmeisturum Bayern München.

Þetta segir enska götublaðið Daily Mirror í dag og fullyrðir að Chelsea ætli sér að nýta það að Lewandowski sé ósáttur hjá Bayern. Hann geti fyllt í skarðið fyrir Diego Costa sem líklega sé á förum.

Lewandowski hefur raðað inn mörkum hvar sem hann spilar, með pólska landsliðinu, Bayern og áður Dortmund. Hann verður 29 ára í ágúst.

Samkvæmt frétt Mirror var Pólverjinn óánægður með liðsfélaga sína hjá Bayern í síðasta mánuði og sakaði þá um að hafa ekki gert nægilega mikið til að hann yrði markakóngur í Þýskalandi. Umboðsmaður Lewandowskis bætti við þetta og sagði: „Robert sagðist ekki hafa fengið neinn stuðning og að þjálfarinn hefði ekki gefið neina skipun um að hjálpa honum að verða markakóngur. Ég hef aldrei séð hann svona vonsvikinn,“ en Bayern hafði fyrir nokkru tryggt sér þýska meistaratitilinn.

Mirror segir að Chelsea hafi einnig reynt að fá belgíska framherjann Romelu Lukaku en sé ekki tilbúið að borga nálægt þeim 100 milljónum punda sem Everton vilji fá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert