Manchester United hefur fengið tilboð í belgíska leikmanninn Adnan Januzaj sem hljóðar upp á tæpar tíu milljónir punda.
Það er spænska félagið Real Sociedad sem samkvæmt Sky hefur lagt fram tilboðið í hinn 22 ára gamla Januzaj, sem hefur verið úti í kuldanum á Old Trafford síðustu tímabil eftir að hafa lofað góðu þegar hann kom fram á sjónarsviðið.
Januzaj var lánaður til Sunderland á síðasta tímabili og kom við sögu í 25 leikjum, en féll með liðinu úr deildinni. Tímabilið á undan var hann í láni hjá Dortmund í Þýskalandi. Hann á að baki sex landsleiki fyrir Belgíu.
Real Sociedad hafnaði í sjötta sæti spænsku 1. deildarinnar á síðustu leiktíð.