Alves að ganga í raðir City

Dani Alves í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr í þessum mánuði.
Dani Alves í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr í þessum mánuði. AFP

Brasilíski bakvörðurinn Dani Alves mun væntanlega verða leikmaður Manchester City áður en vikan er öll að því er fram kemur í enskum fjölmiðlum.

Alves, sem er 34 ára gamall, á eitt ár eftir af samningi sínum við Juventus en ljóst er að hann verður ekki áfram í herbúðum Ítalíumeistaranna og mun að sögn enskra miðla gera tveggja ára samning við Manchester City.

Alves mun þá leika aftur undir stjórn Pep Guardiola en hann keypti Brasilíumanninn til Barcelona árið 2008 frá Sevilla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert