Chelsea búið að selja Traore

Bertrand Traore.
Bertrand Traore. AFP

Þau tíðindi bárust úr herbúðum Englandsmeistara Chelsea í kvöld að félagið hafi gengið frá sölu á Bertrand Traore til franska liðsins Lyon fyrir 8,8 milljónir punda.

Traore, sem er 21 árs gamall landsliðsmaður frá Burkina Faso, skrifaði undir fimm ára samning við Lyon. Hann gekk í raðir Chelsea árið 2014 og skoraði 4 mörk í 16 leikjum sem hann spilað með liðinu. Á síðustu leiktíð var hann í láni hjá hollenska liðinu Ajax þar sem hann skoraði 13 mörk og tók þátt í úrslitaleiknum á móti Manchester United í Evrópudeildinni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert