Matic færist nær United

Nemanja Matic í leik með Chelsea.
Nemanja Matic í leik með Chelsea. AFP

Enska blaðið Guardian greinir frá því að Chelsea og Manchester United hafi náð samkomulagi um félagaskipti serbneska miðjumannsins Nemanja Matic til Manchester United.

Kaupverðið er talið verða um 40 milljónir punda og er reiknað með að gengið verði frá félagaskiptunum í vikunni en Guardian segir að leikmaðurinn hafi náð samkomulagi við United um kaup og kjör. Hann mun að sögn blaðsins frá 155 þúsund pund á viku en sú upphæð jafngildir rúmum 20 milljónum króna.

José Mourinho, stjóri Manchester-liðsins, þekkir vel til Matic en hann fékk hann til Chelsea þegar hann var við stjórnvölinn hjá Lundúnaliðinu í janúar 2014. Chelsea greiddi 21 milljón punda fyrir Serbann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert