Matic búinn að fá grænt ljós til að fara til United

Nemanja Matic í leik með Chelsea.
Nemanja Matic í leik með Chelsea. AFP

Serbneski miðjumaðurinn Nemanja Matic er búinn að fá grænt ljós frá Roman Abramovich eiganda Chelsea til að ganga til liðs við Manchester United að því er enskir fjölmiðlar greina frá í kvöld.

José Mourinho, knattspyrnustjóri United, hefur verið með Matic á óskalista sínum og vill endurnýja kynnin við hann en þeir unnu saman hjá Chelsea áður en Mourinho var rekinn frá félaginu.

50 milljón punda verðmiði er á Serbanum en talið er að Chelsea hafi þegar hafnað tveimur tilboðum frá United í leikmanninn sem hljóðuðu upp á 35 og 40 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert