Morata samdi til fimm ára við Chelsea

Alvaro Morata með Chelsea-treyjuna.
Alvaro Morata með Chelsea-treyjuna. Ljósmynd/Twitter-síða Chelsea

Þau tíðindi voru að berast úr herbúðum Englandsmeistara Chelsea að spænski sóknarmaðurinn Álvaro Morata er búinn að skrifa undir fimm ára samning við félagið.

Morata kemur til Chelsea frá Evrópu- og Spánarmeisturum Real Madrid og er kaupverðið 60 milljónir punda sem er metfé sem Chelsea hefur greitt fyrir leikmann.

„Ég er svo ánægður að vera kominn hingað. Ég mun leggja hart að mér, skora eins mörg mörk og ég get og vinna eins marga titla og mögulegt er,“ segir Morata á vef Chelsea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert