Englandsmeistarar Chelsea lögðu bikarmeistara Arsenal á sannfærandi hátt, 3:0, þegar liðin mættust í æfingaleik í Peking, höfuðborg Kína, í dag.
Mörkin komu á níu mínútna kafla í kringum leikhléð en Willain og Michy Batshuayi skoruðu undir lok fyrri hálfleiks og Batshuayi bætti við marki í upphafi þess síðari.
Leikið var í „Fuglshreiðrinu," Ólympíuleikvanginum í Peking.