Coutinho allt í öllu í sigri Liverpool

Mohamed Salah fagnar ásamt Philippe Coutinho í dag.
Mohamed Salah fagnar ásamt Philippe Coutinho í dag. AFP

Liverpool lagði Leicester 2:1 í leik liðanna á æfingamótinu Asia Trophy sem fram fer Hong Kong.

Leicester komst yfir með skallamarki frá Alsírbúanum Islam Slimani á 12. mínútu.

Egyptinn Mohamed Salah skoraði sitt annað mark fyrir Liverpoo í jafn mörgum leikjum á  á 20. mínútu með snaggaralegum skalla eftir sendingu inn fyrir frá Coutinho.

Brasilíumaðurinn var svo á ferðinni á 44. mínútu með frábæru skoti í fjærhornið fyrir utan teig.

Um svokallaðan úrslitaleik var að ræða í mótinu en fyrr í dag vann fyrr í dag vann Crystal Palace West Bromwich 2:0 í sömu keppni þar sem Luka Milivojevic og Bakary Sako skoruðu mörkin fyrir Palace.

Byrjunarlið Liverpool: Mignolet, Clyne, Matip, Lovren, Milner, Henderson, Lallana, Coutinho , Salah, Firmino, Mane.

Byrjunarlið Leicester:Schmeichel; Fuchs, Maguire, Morgan, Amartey; Albrington, Drinkwater, Matty James, Mahrez; Vardy, Slimani.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert