Everton með nýtt og betra tilboð í Gylfa

Það virðist vera spurning hvenær en ekki hvort Gylfi Þór …
Það virðist vera spurning hvenær en ekki hvort Gylfi Þór Sigurðsson færi sig um set. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Enska úrvalsdeildarliðið Everton hefur lagt fram tilboð upp á 45 milljónir punda í Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann Swansea, ef marka má heimildir Sky Sports. Swansea hafnaði tilboði upp á 40 milljónir punda frá Everton í síðustu viku. 

Forráðamenn Everton vilja hins vegar ólmir fá Hafnfirðinginn í sínar raðir. Ekki er ljóst hvort Swansea samþykki tilboðið eður ei, en félagið er talið vilja 50 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Gylfi hefur verið orðaður við Everton í allt sumar og hann fór ekki með Swansea í æfingaferð til Bandaríkjanna á dögunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert