Ætla sér að fá Coutinho

Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. AFP

Forráðamenn Barcelona eru ekki búnir að gefast upp í baráttu sinni við að fá brasilíska miðjumanninn Philippe Coutinho frá Liverpool til liðs við sig og þeir eru mættir til Englands til að ræða við umboðsmann leikmannsins.

Að því er fram kemur í spænska blaðinu Sport gætu Börsungar þurft að punga út 100 milljónum evra til þess að fá Coutinho sem hefur verið í herbúðum Liverpool frá árinu 2013.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, stendur hins vegar fastur á því að hann vilji alls ekki missa Brassann frábæra úr sínum röðum en hann gerði nýjan samning við Liverpool fyrr á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert