Inter Milan er sagt reiðubúið að leyfa króatíska miðjumanninum Ivan Perisic að yfirgefa félagið og ganga í raðir Manchester United, en United hefur verið á eftir honum í allt sumar.
José Mourinho, knattspyrnustjóri United, vill hinn 28 ára gamla Perisic til þess að fá aukinn kraft á miðjuna og eru forráðamenn Inter sagðir tilbúnir að selja hann fyrir 48 milljónir punda.
„Ef einhver kemur með tilboð sem væri erfitt að hafna munum við skoða það,“ sagði Luciano Spalletti, knattspyrnustjóri Inter, um stöðuna hjá Perisic.
Perisic gekk til liðs við Inter Milan frá Wolfsburg árið 2015, en hann skoraði 10 deildarmörk á síðustu leiktíð og gaf auk þess sex stoðsendingar á samherja sína í deildarleikjum liðsins.