3.000 miðar seldir á ofurleikinn

Sergio Aguero og David Silva leika á Laugardalsvellinum eftir viku.
Sergio Aguero og David Silva leika á Laugardalsvellinum eftir viku. AFP

Ragnar Vilhjálmsson, talsmaður The Super Match á Íslandi, sagði að um hádegi í gær hefði verið búið að selja rúmlega 3.000 miða, af rúmlega 9.000 í vestur- og austurstúku, á leik Manchester City og West Ham sem fram fer á Laugardalsvellnum á föstudaginn eftir viku. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Samkvæmt sölusíðunni midi.is er miðaverð 5.899 til 16.899 kr. Ragnar benti á að miði veitti jafnframt aðgang að æfingu liðanna á Laugardalsvelli fimmtudaginn 3. ágúst.

Til stóð að reisa bráðabirgðastúku við norðurenda vallarins. Ragnar sagði ólíklegt að stúkan yrði reist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert