City vill borga vel fyrir fyrrverandi leikmann United

Jonny Evans.
Jonny Evans. AFP

Forráðamenn Manchester City eru á höttunum eftir Jonny Evans, varnarmanni West Brom, og eru tilbúnir að borga vel fyrir þjónustu hans.

Hinn 29 ára gamli Evans var í níu ár á mála hjá erkifjendum City í Manchester United en hefur verið hjá West Brom frá 2015. Leicester átti boð upp á 10 milljónir punda sem var hafnað, en City er talið ætla að borga um 25 milljónir punda.

Evans vann á sínum tíma þrjá Englandsmeistaratitla hjá United og spilaði 198 leiki fyrir liðið. Eftir að Louis van Gaal tók við mátti hann hins vegar fara og hefur staðið sig vel sem fyrirliði West Brom. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert