Tottenham loksins að kaupa leikmann

Davinson Sánchez skorar fyrir Ajax.
Davinson Sánchez skorar fyrir Ajax. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur náð samkomulagi um kaupverð á Davinson Sánchez, leikmanni Ajax. Kaupverðið er um 42 milljónir punda og verður hann dýrasti leikmaður í sögu Tottenham. Sánchez á eftir að gangast undir læknisskoðun, en það er næsta víst að hann verði orðinn leikmaður Tottenham á allra næstu dögum. 

Sánchez er fyrsti leikmaðurinn sem Tottenham kaupir í sumar. Hann er 21 árs gamall Kólumbíumaður sem hefur leikið með Ajax síðan árið 2016 og lék hann m.a í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðustu leiktíð.

Miðvörðurinn hefur nú þegar skrifað undir sex ára samning við enska félagið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert