Aron og félagar með fullt hús á toppnum

Aron Einar Gunnarsson og félagar halda áfram að gera góða …
Aron Einar Gunnarsson og félagar halda áfram að gera góða hluti. Ljósmynd/Heimasíða Cardiff

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Cardiff sem vann ansi góðan 2:1-útisigur á Wolves í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Cardiff er með tólf stig eftir fjóra leiki og er liðið aðeins búið að fá á sig eitt mark til þessa. 

Jón Daði Böðvarsson er enn að glíma við meiðsli og var hann ekki í leikmannahópi Reading sem tapaði gegn Preston á útivelli, 1:0. Birkir Bjarnason var allan tímann á varamannabekk Aston Villa sem vann 4:2 sigur á Norwich og Hörður Björgvin Magnússon var sömuleiðis allan tímann á bekknum hjá Bristol City sem gerði markalaust jafntefli við Millwall á heimavelli. 

Reading er í 18. sæti með fjögur stig, Aston Villa í 16. sæti, sömuleiðis með fjögur stig og Bristol City er í 11. sæti með fimm stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert