Löglegt mark dæmt af okkur

Arsene Wenger var vonsvikinn í dag.
Arsene Wenger var vonsvikinn í dag. AFP

„Það er erfitt að kyngja þessu tapi. Við fengum færi og hefðum átt að vinna leikinn örugglega," sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal eftir 1:0 tap gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni í dag. 

Jesé Rodríguez skoraði sigurmark Stoke í byrjun síðari hálfleiks og var Wenger ósáttur við að mark Alexandre Lacazette var dæmt af, þar sem hann taldi það löglegt. 

„Við vorum óheppnir. Við skoruðum löglegt mark sem var dæmt af og það var pirrandi að fá þetta mark á okkur. Við reyndum en við náðum ekki að jafna. Það eru vonbrigði að tapa þessum leik því við áttum að vinna hann," sagði Wenger. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert