Mourinho vill sjá liðið sitt lenda undir

José Mourinho á hliðarlínunni gegn Swansea í gær.
José Mourinho á hliðarlínunni gegn Swansea í gær. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er ánægður með byrjunina á leiktíðinni hjá sínum mönnum enda liðið búið vinna tvo fyrstu deildarleiki sína gegn West Ham og Swansea, 4:0. 

Portúgalinn segir hins vegar að hann væri til í að sjá liðið sitt lenda undir í leik til að sjá hvernig það myndi bregðast við. 

„Ég væri til í að sjá hvernig liðið mitt bregst við því að lenda undir. Það gengur allt mjög vel hjá okkur núna en það verður ekki alltaf svoleiðis, við munum lenda á einhverjum hindrunum. Það væri gaman að sjá viðbrögðin ef við lendum undir,“ sagði Mourinho í viðtali við Sky Sports. 

„Ég er einnig spenntur að sjá hvað við gerum ef staðan er jöfn seint í leikjum. Ég er ánægður með byrjunina en við unnum líka fyrstu tvo leikina á síðustu leiktíð og enduðum í sjötta sæti,“ sagði hann að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert