Swansea að kaupa arftaka Gylfa

Sam Clucas í leik með Hull City.
Sam Clucas í leik með Hull City. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Swansea City hefur samþykkt að borga 16,5 milljónir punda fyrir Sam Clucas, leikmann Hull City. Clucas er miðjumaður og er honum ætlað að fylla í skarð Gylfa Þórs Sigurðssonar sem gekk í raðir Everton á dögunum. 

Clucas hefur verið í herbúðum Hull síðan 2015 og hefur hann á þeim tíma leikið 96 leiki og skorað níu mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert