Tottenham fær markmann Southampton

Paulo Gazzaniga er orðinn leikmaður Tottenham.
Paulo Gazzaniga er orðinn leikmaður Tottenham. Ljósmynd/Tottenham

Tottenham hefur gengið frá kaupum á argentínska markmanninum Paulo Gazzaniga frá Southampton og skrifar hann undir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið. 

Gazzaniga lék undir stjórn Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóra Tottenham, hjá Southampton og þekkjast þeir því vel. 

Argentínska markmanninum er ætlað að berjast um markmannsstöðuna við Michel Vorm og Hugo Lloris. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert