Zlatan valinn í Meistaradeildarhópinn

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Svíinn Zlatan Ibrahimovic hefur verið valinn í Meistaradeildarhóp Manchester United en sem kunnugt er gerði Zlatan nýjan eins ár samning við Manchester-liðið í síðasta mánuði þrátt fyrir að vera meiddur og óleikfær fram til áramóta.

Zlatan er að jafna sig eftir erfið hnémeiðsli og ekki er búist við því að hann snúi aftur inn á völlinn fyrr en í janúar. Hann hefur hins vegar verið valinn í 24 manna hóp Manchester United sem spilar í Meistaradeildinni en liðið er í riðli með Basel, Benfica og CSKA Moskva.

Zlatan, sem er 35 ára gamall, skoraði 28 mörk í öllum keppnum með Manchester United á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert