Sektaður um tveggja vikna laun

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Everton sektaði í dag Wayne Rooney um tveggja vikna laun en hann játaði fyrr í vikunni brot sitt að aka undir áhrifum áfengis.

Hann var í kjöl­farið svipt­ur öku­rétt­ind­um í tvö ár, auk þess sem hann þarf að sinna sam­fé­lagsþjón­ustu í 100 klukku­stund­ir.

Tveggja vikna laun Rooney eru um 300 þúsund pund, jafnvirði rúmlega 43 milljóna króna, og mun sú upphæð renna til góðgerðarmála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert