Áfall fyrir Palace

Hugað að meiðslum Benteke.
Hugað að meiðslum Benteke. AFP

Christian Benteke, framherjinn stóri og stæðilegi í liði Crystal Palace, verður frá keppni í það minnsta næstu sex vikurnar vegna meiðsla.

Benteke varð fyrir meiðslum á hné í 5:0 tapi Palace gegn Manchester City á laugardaginn og eftir myndatöku í dag kom í ljós að hann er með sködduð liðbönd í hnénu.

Benteke og samherjar hans hafa byrjað tímabilið í ensku úrvalsdeildinni hörmulega en Crystal Palace er án stiga eftir sex umferðir og hefur ekki náð að skora eitt einasta mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert