Fellaini kominn á sjúkralistann

Marouane Fellaini í leiknum gegn Southampton á laugardaginn.
Marouane Fellaini í leiknum gegn Southampton á laugardaginn. AFP

Belgíski miðjumaðurinn Marouane Fellaini verður ekki með Manchester United þegar það mætir CSKA Moskva í Meistaradeildinni í Rússlandi á miðvikudaginn.

Belginn hárprúði varð fyrir meiðslum á ökkla í leiknum gegn Southampton á laugardaginn og fór ekki með Manchester-liðinu sem hélt til Rússlands í dag. Ekki er ljóst hversu lengi Fellaini verður frá keppni en hann hefur komið sterkur inn í lið United eftir að Paul Pogba heltist úr lestinni vegna meiðsla fyrr í þessum mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert