Aron Einar á bekknum hjá Cardiff

Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson mbl.is/Golli

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er á varamannabekk Cardiff sem mætir Birmingham á útivell í ensku B-deildinni í kvöld. Aron hefur verið tæpur vegna meiðsla og þurfti hann að fara af velli gegn bæði Tyrklandi og Kósóvó í undankeppni HM á dögunum. 

Aron hefur átt fast sæti í byrjunarliði Cardiff á leiktíðinni, en hann missti af síðustu tveimur leikjum Cardiff fyrir landsleikjahléið vegna meiðsla. Cardiff hefur farið mjög vel af stað í deildinni og er í toppsætinu með 24 stig eftir 11 leiki. 

Bristol City fær heimsókn frá Burton Albion í sömu deild í kvöld og kemur lítið á óvart að Hörður Björgvin Magnússon er á meðal varamanna Bristol, eins og í öllum deildarleikjum liðsins á leiktíðinni til þessa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert