Aron meiddur af velli í tapleik

Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson mbl.is/Golli

Aron Einar Gunnarsson átti ekki gott kvöld með Cardiff sem tapaði fyrir Birmingham á útivelli, 1:0, í ensku B-deildinni í knattspyrnu. Aron byrjaði á varamannabekk Cardiff, kom inn á sem varamaður á 68. mínútu en fór meiddur af velli í blálokin. 

Aron hefur verið tæpur vegna meiðsla að undanförnu og gat hann ekki klárað landsleikina gegn Tyrklandi og Kósóvó vegna þess. Hann missti auk þess af tveimur síðustu leikjum Cardiff fyrir landsleikjahléið. 

Hörður Björgvin Magnússon var allan tímann á varamannabekk Bristol City sem gerði markalaust jafntefli við Burton Albion í sömu deild í kvöld. 

Cardiff er enn í toppsæti deildarinnar, þrátt fyrir tapið en gæti misst það með óhagstæðum úrslitum á morgun. Bristol City er í 3. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert