Segir að Rose fari hvergi

Danny Rose í leik með Tottenham.
Danny Rose í leik með Tottenham. AFP

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að ekkert sé til í fréttum enskra fjölmiðla í dag um að enski landsliðsbakvörðurinn Danny Rose sé mögulega á förum til Manchester United.

„Þið eruð að tala um tómar getgátur. Enginn í okkar liði er til sölu," sagði Pochettino og sagði jafnframt að Rose væri að jafna sig af meiðslum og einbeitti sér að því að verða á ný leikfær fyrir lið Tottenham. „Hann er mikilvægur hlekkur í okkar liði," sagði Pochettino en Tottenham tekur á móti Bournemouth á morgun.

Rose, Mousa Démbélé, Erik Lamela og Victor Wanyama eru allir frá keppni hjá Tottenham vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert