„Þessi ummæli höfðu engin áhrif á mig, en ég skil það vel að aðrir innan félagsins hafi litið á þau sem vanvirðingu við sig. Ég þekki Guardiola mjög vel og ég kann vel við hann. Mér fannst þessi ummæli hins vegar alger óþarfi. Ég lét til dæmis aldrei hafa eftir mér að Barcelona væri eins manns lið þó að það væri augljóst að [Lionel] Messi væri lykilleikmaður í liðinu,“ sagði Pochettinio á blaðamannafundi í dag.