Hodgson fær sér rauðvín í kvöld

Roy Hodgson var ánægður eftir leik í dag.
Roy Hodgson var ánægður eftir leik í dag. AFP

Roy Hodgson var alsæll með sigur sinna manna í Crystal Palace á Englandsmeisturum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.Palace hafði ekki skorað fyrir leikinn í dag á tímabilinu og tapað fyrstu sjö leikjunum með markatöluna 0:17 samanlag. Liðið vann hins vegar Chelsea 2:1 í dag.

Hodgsonv var eiturhress í viðtölum eftir leik og ætlar að leyfa sér að fá sér rauðvín í kvöld.

„Ég drekk ekki mikið þessa dagana. Rauðvín er ekki það besta ef þú vilt halda halda hitaeiningafjöldanum niðri. En ég mun njóta þess að fá mér eitt í kvöld af því að ég naut þess að sjá strákana mína spila vel. Ég er stoltur af frammistöðu þeirra,“ sagði Hodgson en hann hefur ekki haft mikið tilefni til þess að brosa eftir knattspyrnuleiki síðustu misseri en undir hans stjórn féll enska landsliðið eins og frægt er orðið úr leik gegn Íslandi á EM í knattspyrnu í Frakklandi 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert