Enn eitt liðið sem Rooney skorar gegn

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Wayne Rooney tryggði Everton annað stigið gegn Brighton þegar liðin gerðu 1:1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.

Þar með hefur Rooney skorað gegn 36 mismunandi liðum í ensku úrvalsdeildinni og eru aðeins þrír leikmenn sem hafa gert betur en hann. Frank Lampard skoraði gegn 39 mismunandi liðum, Andy Cole 38 og Alan Shearer 37.

Eina liðið sem er í úrvalsdeildinni í dag sem Rooney hefur ekki skorað gegn er Manchester United sem hann yfirgaf í sumar. Liðin áttust við í deildinni í síðasta mánuði þar sem United vann öruggan sigur, 4:0. Flest mörkin hefur Rooney skorað á móti Newcastle eða 14 í 22 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert