Enn missa meistararnir mann í meiðsli

Hugað að meiðslum Moses.
Hugað að meiðslum Moses. AFP

Englandsmeistarar Chelsea eru búnir að missa enn einn leikmanninn í meiðsli. Nú er miðjumaðurinn Victor Moses kominn á sjúkralistann og verður frá keppni næstu vikurnar.

Moses tognaði í læri í tapi Chelsea gegn Crystal Palace á laugardaginn en áður hafði miðjumaðurinn N’Golo Kante og framherjinn Alvaro Morata helst úr lestinni og þá hefur Danny Drinkwater ekki náð að spila neinn leik með Chelsea síðan félagið keypti hann frá Leicester fyrir 35 milljónir punda í sumar. Drinkwater glímir við meiðsli í kálfa.

Reiknað er með að Moses verði frá keppni í fjórar vikur en Antonio Conte, stjóri Chelsea, er ekki með stóran hóp og var hundfúll að félagið skildi ekki hafa keypt fleiri leikmenn í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert