Wenger sleppur við refsingu

Arsene Wenger.
Arsene Wenger. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, verður ekki refsað fyrir háttsemi sína í 2:1-tapi Arsenal gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Wenger var sótillur þegar Watford fékk vítaspyrnu í síðari hálfleik eftir að Hector Bellerin gerðist brotlegur. Wenger á að hafa látið dómarann Neil Swarbrick heyra það og elti hann niður ganginn eftir leik og að dómaraherberginu þar sem hann á að hafa látið þung orð falla.

Wenger talaði um atvikið á fréttamannafundi eftir leik og talaði um dómaraskandal, en Swarbrick dómari lét ekkert uppi um málið í skýrslu sinni eftir leik og því mun enska knattspyrnusambandið ekkert aðhafast frekar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert