Sofiane Boufal var hetja Southampton þegar liðið bar sigurorð af WBA með einu marki gegn engu í níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á St. Mary's í dag.
Boufal skoraði fyrir Southampton undir lok leiksins, en marokkóski landsliðsmaðurinn var þá nýkominn inn á sem varamaður. Mark Boufal var einkar laglegt, en hann skoraði með hnitmiðuðu skoti eftir glæsilegan einleik frá eigin vallarhelmingi.
Southampton komst í seilingarfjarlægð frá fallsvæðinu með þessum sigri, en liðið situr í tíunda sæti deildarinnar með 12 stig. WBA hefur hins vegar tíu stig í 13. sæti deildarinnar.
Southampton | 1:0 | WBA | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Charlie Austin (Southampton) á skot í stöng Charlie Austin sleppur í gegnum vörn WBA eftir góða stungusendingu frá Sofiane Boufal. Austin kemst framhjá Ben Foster og skýtur í stöngina í þröngu færi. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |