Pearce aðstoðar Moyes hjá West Ham

David Moyes.
David Moyes. AFP

David Moyes, nýráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, er búinn að ráða sér aðstoðarmenn.

Stuart Pearce, fyrrverandi þjálfari U21 árs landsliðs Englendinga, sem lék á árum áður með West Ham, verður einn af aðstoðarmönnum Moyes. Hinir tveir eru Alan Irwing, sem vann með Moyes þegar hann var knattspyrnustjóri Preston og síðar Everton, og Billy McKinlay, sem starfaði með Moyes þegar hann var við stjórnvölinn hjá Sunderland á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert