Agüero verður leikfær um helgina

Sergio Agüero skorar fyrir Argentínu í leik liðsins gegn Nígeríu. …
Sergio Agüero skorar fyrir Argentínu í leik liðsins gegn Nígeríu. Agüero neyddist síðan til þess að fara af velli í hálfeik vegna mikils svima. AFP

Argentínski landsliðsframherjinn Sergio Agüero fékk aðsvif í hálfleik þegar Argentína mætti Nígeríu í vináttulandsleik og var sendur með hraði á sjúkrahús í gærkvöldi.

Agüero er kominn til Manchester þar sem hann er undir lækna á vegum Manchester City. Samkvæmt heimildum Daily Mail verður Agüero orðinn leikfær þegar Manchester City mætir Leicester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla um næstu helgi. 

Manchester City trónir á toppi deildarinnar með 31 stig. Agüero er markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Harry Kane, en þeir hafa hvor um sig skorað átta mörk í deildinni á yfirstandandi leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert