Fellaini gæti farið frítt frá United

Marouane Fellaini.
Marouane Fellaini. AFP

Forráðamenn Manchester United eru sagðir tilbúnir til þess að láta belgíska miðjumanninn Marouane Fellaini fara frítt frá félaginu frekar en að selja hann í janúar.

Samningur Fellaini rennur út næsta sumar og viðræður um nýjan hafa ekki gengið vel. Hinn 29 ára gamli Belgi hafnaði samningstilboði í september og síðan þá hafa viðræður gengið illa.

Fellaini hefur farið allan tilfinningaskalann hjá stuðningsmönnum United, sem bauluðu á hann á síðasta tímabili, en er nú kominn aftur í náðina. Hann hefur þó glímt við meiðsli en engu að síður skorað fjögur mörk í níu leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert