Klopp á sjúkrahús og missti af æfingu

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, missti af æfingu liðsins í dag eftir að hafa gengist undir rannsóknir á sjúkrahúsi.

Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu félagsins ákvað hann að fara á sjúkrahús til öryggis eftir að hafa fundið fyrir veikindum. Hann mun ekki hafa þurft að leggjast inn og ætti ekki að missa af fleiri æfingum.

Í tilkynningu frá Liverpool segir enn fremur að ekki verði greint frá ástæðum þess að Klopp leitaði læknis af virðingu við hans einkalíf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert