Benteke klár í að mæta Gylfa og félögum

Christian Benteke hefur misst af síðustu sex leikjum Crystal Palace.
Christian Benteke hefur misst af síðustu sex leikjum Crystal Palace. AFP

Liðsfélagar Gylfa Þór Sigurðssonar í vörninni hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton þurfa að glíma við sóknarmanninn Christian Benteke þegar liðið sækir Crystal Palace heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun.

Benteke er búinn að jafna sig af hnémeiðslum sem hafa haldið honum frá keppni í síðustu sex leikum og hefur Roy Hodgson, stjóri Palace, þurft að nota vængmennina Wilfried Zaha og  Andros Townsend til að fylla skarð Belgans stóra og stæðilega.

Crystal Palace er á botni deildarinnar með aðeins 4 stig en Everton náði að lyfta sér upp í 15. sætið með 11 stig eftir sigurinn gegn Watford fyrir landsleikjafríið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert