Coleman vill fá tvo frá Liverpool

Chris Coleman.
Chris Coleman. AFP

Chris Coleman, nýráðinn knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Sunderland, vill fá tvo leikmenn frá Liverpool þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.

Leikmennirnir sem Coleman vill fá eru þeir Ben Woodburn og Danny Ward, tveir ungir og afar efnilegir leikmenn. Sunderland Echo, staðarblaðið í Sunderland, greinir frá þessu.

Coleman þekkir þá Woodburrn og Ward vel en báðir léku þeir sína fyrstu landsleiki með Wales undir hans stjórn en Coleman ákvað að hætta þjálfun velska landsliðsins á dögunum og var í kjölfarið ráðinn stjóri Sunderland í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert