Coutinho tók fram úr Fowler og Owen

Philippe Coutinho fagnar marki sínu um helgina.
Philippe Coutinho fagnar marki sínu um helgina. AFP

Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool, er óðum að skrá sig á spjöld sögunnar hjá félaginu og náði einum stórum áfanga um helgina.

Coutinho skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3:0-sigri Liverpool gegn Southampton um helgina og hefur nú alls gefið 31 stoðsendingu í ensku úrvalsdeildinni fyrir liðið. Hann er nú búinn að taka fram úr bæði Robbie Fowler og Michael Owen, goðsögnum hjá liðinu, sem lögðu upp 30 mörk.

Coutinho á þá nokkuð í land með að verða sá stoðsendingahæsti hjá félaginu, en Steve McManaman lagði upp 58 mörk í deildinni og Steven Gerrard 92.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert