Eden Hazard segir að fyrrverandi liðsfélagi sinn hjá Chelsea, Mohamed Salah, núverandi leikmaður Livepool, hafi ekki fengið tækifærið hjá Chelsea er hann lék undir stjórn José Mourinho. Þeir félagarnir mætast á morgun í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en leikurinn fer fram á Anfield kl. 17:30.
Chelsea vann kapphlaupið við Liverpool um Salah árið 2014 og keypti hann á 11 milljónir punda. Þá kom Salah inn í liðið í stað Juan Mata sem fór til Manchester United sem nú er undir stjórn Mourinho.
Salah fékk fá tækifæri undir þáverandi stjóra Chelsea, José Mourinho, spilaði aðeins sex leiki í byrjunarliðinu og var á endanum lánaður til Fiorentina og Roma á Ítalíu þar sem hann svo endaði þangað til Liverpool keypti hann á metfé í sumar, 36,9 milljónir punda.
Egyptinn hefur farið frábærlega stað með Liverpool í deildinni á tímabilinu og skorað 14 mörk í 19 leikjum sem er það mesta sem einn leikmaður hefur gert síðan tímabilið 2013-14 hjá Liverpool.
„Hann er algjör toppleikmaður. Hann fékk ekki tækifærið hjá Chelsea. Kannski var það vegna stjórans en kannski var það út af öðrum leikmönnum,“ sagði Hazard.
Þeir Hazard og Salah eru félagar og halda enn sambandi og hefur Hazard þegar ákveðið að fá treyju Salah á morgun
„Hann býr yfir gæðum en ég man á þessum tíma þá höfðum við mig, Willian, Oscar og hann, þannig að þetta var ekki auðvelt. En hann er toppleikmaður, það er á hreinu og við vitum hvaða gæðum hann býr yfir. Hann er frábær framherji og hefur skorað mörg mörk,“ sagði Hazard.
Hazard sjálfur hefur farið ansi vel af stað á leiktíðinni eftir að hann kom til baka úr meiðslum og hefur skorað sex mörk í sjö leikjum.