Gylfi fékk hæstu einkunn

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórkostlegt mark og er hér fagnað.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði stórkostlegt mark og er hér fagnað. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson fékk hæstu einkunn af öllum leikmönnum Everton eftir 4:1-tap liðsins fyrir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Gylfi Þór skoraði jöfnunarmark Everton með glæsilegu skoti eins og mbl.is hefur fjallað um, en hann fær 7 í einkunn hjá Sky fyrir frammistöðu sína í annars jöfnu Everton-liði. Hann fær einnig 7 hjá Liverpool-Echo á meðan þeir Phil Jagielka, Michael Keane og Morgan Schneiderlin fá allir 4.

Gylfi fær 6,5 hjá Daily Mail og er hæstur, en á öðrum stað er hann efstur með 6 á meðan til að mynda varamaðurinn Ashley Williams fær 3 í einkunn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert