Þægilegt hjá Chelsea - Palace úr fallsæti

Willian skoraði eitt marka Chelsea.
Willian skoraði eitt marka Chelsea. AFP

Chelsea átti ekki í nokkrum vandræðum með að leggja Huddersfield að velli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Tiemoué Bakayoko og Willian komu Chelsea í 2:0 í fyrri hálfleik og Pedro skoraði þriðja markið snemma í síðari hálfleik. Laurent Depoitre skoraði sárabótamark fyrir Huddersfield í blálokin. Chelsea jafnaði Manchester United á stigum í 2. sæti deildarinnar en United á leik til góða. 

Spennan var mun meiri er botnlið Crystal Palace fékk heimsókn frá Watford. Daryl Hanmaat kom Watford yfir í upphafi leiks og var staðan 1:0 þangað til á 89. mínútu er Bakary Sako skoraði, tveimur mínútum eftir að Tom Cleverley fékk rautt spjald í liði Watford. Palace var hins vegar ekki hætt því James McArthur skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og Palace fór úr fallsæti. 

Úrslit dagsins í ensku úrvalsdeildinni: 

Burnley - Stoke 1:0
Barnes 88'

Crystal Palace - Watford 2:1
Sako 89', McArthur 90' -- Janmaat 4'

Huddersfield - Chelsea 1:3
Depoitre 90' -- Bakayoko 23', Willian 43' Pedro 50'

Huddersfield 1:3 Chelsea opna loka
90. mín. Danny Williams (Huddersfield) á skot framhjá Stórhættulegt skot sem fer í Depoitre og hárfínt framhjá.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert