Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, greinir frá því í dag að hann hafnaði tækifærinu til að ganga í raðir Evrópumeistara Real Madrid til að skrifa undir samning hjá Manchester United.
Frakkinn kom í gegnum unglingastarf United en fór til Juventus 2012. Hann sneri svo aftur til Manchester United árið 2016. Hann sér ekki eftir þeirri ákvörðun, þrátt fyrir áhuga Real Madrid.
„Real Madrid setti sig í samband við mig og ég íhugaði að fara þangað. Ég var að hugsa um að fara til Manchester United á sama tíma og ég endaði að lokum þar. Það var eitthvað í hjartanu mínu sem sagði mér að fara aftur til United, ég veit ekki hvers vegna. Ég sé ekki eftir því,“ sagði Pogba.