Zlatan segir Guardiola óþroskaðan

Zlatan Ibrahimovic kom inn á sem varamaður gegn City.
Zlatan Ibrahimovic kom inn á sem varamaður gegn City. AFP

Zlatan Ibrahimovic er ekki sérstaklega hrifinn af fyrrverandi knattspyrnustjóra sínum hjá Barcelona, Pep Guardiola, og segir hann Spánverjann vera óþroskaðan. Zlatan leikur nú með Manchester United og Guardiola stýrir erkifjendunum í Manchester City. 

Zlatan spilaði 29 leiki fyrir Barcelona undir stjórn Guardiola árið 2009 og skoraði hann 16 mörk. Samband þeirra var gott til að byrja með, en eftir því sem leið á samstarfið, varð það verra. 

„Fyrstu sex mánuðirnir voru fullkomnir en svo breytti hann um leikskipulag og það hentaði mér ekki. Ég spjallaði við hann og lýsti áhyggjum mínum. Hann sagðist ætla að laga það, en svo var ég kominn á bekkinn. Eftir þetta hætti hann að tala við mig. Hann er ekki slæm manneskja, en hann er óþroskaður,“ sagði Ibrahimovic. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert