Salah bestur í nóvember

Mohamed Salah fagnar marki með Liverpool.
Mohamed Salah fagnar marki með Liverpool. AFP

Egypski knattspyrnumaðurinn Mohamed Salah hjá enska úrvalsdeildarliðinu Liverpool var valinn besti leikmaður nóvembermánaðar í deildinni en hann hefur verið í frábæru formi upp á síðkastið.

Salah er markahæstur í deildinni með 13 mörk í 17 leikjum. Harry Kane hjá Tottenham kemur næstur með 12 mörk.

Salah skoraði sjö mörk í aðeins fjórum leikjum í nóvember. Hann skoraði tvö mörk í 4:1 sigri liðsins á West Ham, önnur tvö í 3:0 sigri á Southampton, eina mark Liverpool í jafntefli gegn Chelsea, 1:1, og tvö mörk gegn Stoke í 3:0 sigri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert