Yndislegt jólagóðverk Everton (myndskeið)

Leikmenn Everton á góðri stundu.
Leikmenn Everton á góðri stundu. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans hjá enska knattspyrnufélaginu Everton létu svo sannarlega gott af sér leiða nú fyrir jólahátíðina.

Leikmennirnir tóku á móti fjölskyldu sem misst hafði allt sitt í bruna nú fyrir jólin. Börnin styðja Everton og áttu meðal annars mikinn varning tengdan félaginu sem ekki varð bjargað úr brunanum.

Auk þess að hitta leikmennina þá var fjölskyldunni komið á óvart með fullt af nýjum varningi í stað þess sem glataðist í brunanum. Eins og meðfylgjandi myndskeið sýnir var gleðin innileg og sannarlega sveif andi jólanna þarna yfir vötnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert